Verða fagmaður
Stofnaðu aðgang á Hnapp.is, settu upp prófílinn þinn og taktu á móti bókunum í myndsímtölum.
Stofna fagmannaaðgang
Engin binding og enginn fastur kostnaður. Þú greiðir aðeins þóknun af bókuðum tímum.
Þegar með aðgang? Skráðu þig inn hér.
Það sem þú setur inn
- Nafn og netfang
- Faggrein eða starfsheiti (hægt að velja fleiri en eina)
- Tungumál sem þú talar
- Lýsing á þjónustunni þinni
- Menntun, hæfni og starfsréttindi þar sem það á við
- Tímagjald fyrir 60 mínútur, alltaf með vsk
Prófíllinn birtist ekki á Hnapp.is fyrr en stjórnandi hefur farið yfir hann og samþykkt. Þú getur breytt upplýsingunum hvenær sem er.
Svona virkar þetta fyrir þig
1. Stofnaðu fagmannaaðgang
Þú stofnar aðgang hér á síðunni með netfanginu þínu. Það tekur innan við mínútu.
2. Fylltu út prófílinn
Nafn, faggrein, tungumál, lýsing á þjónustunni, menntun eða starfsréttindi og tímagjaldið þitt (alltaf með vsk).
3. Við förum yfir prófílinn
Prófíllinn birtist ekki á síðunni fyrr en við höfum farið yfir hann og samþykkt. Þú færð tilkynningu þegar hann er kominn í loftið.
4. Taktu á móti bókunum
Þú setur inn lausa tíma. Viðskiptavinir velja 30 eða 60 mínútur, bóka og greiða fyrirfram.
5. Uppgjör
Á fagmannssvæðinu velur þú tímabil, hakar við loknu tímana og sendir okkur tilkynningu. Formlegur reikningur er stílaður á Lemniscate ehf., kt. 711019-1030, og sendur á hnapp@hnapp.is. Við greiðum út innan 3 virkra daga.
Fyrir fagfólk
Gjöld og útborganir
HNAPP.is heldur eftir 20% af hverri bókun sem lýkur. Þú færð 80% þegar þú sendir reikning á tveggja vikna fresti - án skráningar- eða mánaðargjalds.
Standard
20% þóknun
- Enginn skráningar- eða stofngjaldskostnaður
- Ekkert endurtekið mánaðargjald
- Öruggt myndsímtal og bókunarumsýsla
- Senda reikning og fá útborgun eftir afgreiðslu
Sjáðu dæmið í krónum
Ef bókun kostar 10.000 kr. tekur HNAPP.is 2.000 kr. í vettvangsþóknun og þú færð 8.000 kr. þegar þú sendir reikninginn.
- Bókun
- 10.000 kr.
- Vettvangsþóknun (20%)
- -2.000 kr.
- Þín útborgun
- 8.000 kr.
Útborgunin er bókunarverðið að frádreginni 20% þóknun. Þú sendir reikning á tveggja vikna fresti og HNAPP.is greiðir út innan 3 virkra daga.
- Enginn skráningarkostnaður
- Ekkert mánaðargjald
- Þú sendir reikning á tveggja vikna fresti
Spurt og svarað um gjöld
Þóknunin er reiknuð af heildarverði bókunarinnar.